Fræðsla

Ferlið · 5 mín. lestur

Af hverju 3D hönnun áður en framkvæmdir hefjast

Dýrasta breytingin er sú sem gerð er eftir að steypan er hörðnuð. Þrívíddarhönnun færir allar ákvarðanir fram fyrir framkvæmd, þar sem þær kosta ekkert nema tíma.

Af hverju 3D hönnun áður en framkvæmdir hefjast

Þú sérð niðurstöðuna áður en þú borgar fyrir hana

Flatar teikningar sýna mál en ekki upplifun. Í þrívídd sérðu raunverulega hæð skjólveggjarins, hvernig pallurinn mætir húsinu, hvert kvöldsólin nær og hvort potturinn er of nálægt eldhúsglugganum.

Þetta breytir samtalinu. Í stað þess að ímynda sér niðurstöðuna er hægt að taka ákvarðanir út frá því sem sést, og breyta þeim á meðan það kostar aðeins uppfærslu á mynd.

Betri tilboð og færri aukaverk

Verktakar verðleggja óvissu. Þegar efni, mál og magn liggja fyrir í málsetningarteikningum verða tilboðin nákvæmari, samanburðurinn raunverulegur og aukaverkin færri.

Nákvæm gögn þýða líka réttari efnistöku, minni afgang og styttri framkvæmdatíma, sem er dýrmætt þegar íslenska byggingartímabilið er stutt.

  • Sambærileg tilboð frá fleiri en einum verktaka
  • Efnistaka byggð á mældum magntölum
  • Færri breytingar á framkvæmdatíma
  • Hægt að áfangaskipta verkefninu með heildarsýn

Hvernig ferlið okkar virkar

Við förum yfir lóðina, húsið og óskir þínar, vinnum þrívíddarhönnun og uppfærum hana eftir athugasemdum þínum. Innifaldar eru allt að 10 klukkustundir í breytingar, sem samsvarar yfirleitt tveimur uppfærslum. Vinna umfram það kostar 12.500 kr. + VSK á klukkustund.

Málsetningarteikningar eru sérstök viðbót, verðlagðar eftir umfangi. Ef þú vilt getum við einnig útvegað tilboð í framkvæmdina frá samstarfsverktökum okkar.

Algengar spurningar

Hvað kostar 3D garðhönnun?
3D garðhönnun hjá 3D Garðinum kostar frá 200.000 kr. + VSK og innifelur raunverulegar þrívíddarmyndir af húsi og garði ásamt allt að 10 klukkustundum í breytingar.
Get ég komið með mína eigin hönnun?
Já. Við getum hannað frá grunni, unnið eftir þinni hönnun eða blandað hvoru tveggja saman.
Fylgja málsetningarteikningar með?
Nei, 2D málsetningarteikningar kosta aukalega og eru verðlagðar sérstaklega út frá umfangi verkefnisins.

Viltu sjá þetta í þínum garði?

Við hönnum garðinn í þrívídd svo þú sjáir útkomuna áður en framkvæmdir hefjast.

Óska eftir tilboði